Siggi
Fjölskylda
Kennó
20.05.2007 22:18:09 / Siggi

Eitt sinn verða allir vefir að deyja

Eins og einhverjir hafa kannski tekið eftir er maður búinn að vera frekar hrikalega latur við þetta blogg mitt.  Hvað gerir maður þegar maður er orðinn leiður...jú einmitt... maður leitar á ný mið.. ég tók mig til í einhverju brjálæðiskasti og opnaði síðuna ssigurds.blog.is . Skrif mín munu eiga heima þar í nánustu framtíð eða þangað til ég verð aftur orðinn leiður á þessu og beila þá síðu!

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 21:04:47 / Siggi

Sjálfhverfasta blogg ever

Langt síðan ég skrifaði.  Ég er búinn að hafa nóg að gera annað en að blogga þannig að ég hef ekkert verið að því.  Þannig þetta er fyrsta bloggið sem ég skrifa í langan tíma... laaaaangan tíma.  Er ég búinn í prófum?  Ó nei... eitt próf eftir á föstudaginn... allir búnir í prófum nema ég :( .  En hvað um það... því lengur sem prófin eru því harðara verður próflokadjammið...já...því föstudaginn næsta mun maður drekka úr sér allt vit.  Party klukkan 17:00... hrunið í það..... síðan próflokadjamm kennó....hrunið í það meira.... bærinn... hrunið í það enn meira (ef heilsa leyfir)

En jæja..... þetta var blogg skrifað til að skrifa eitthvað

kv. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 16:38:24 / Siggi

Bara að láta vita af manni....

Maður er alltaf að læra....

Lítill tími til annars

Sí ja al 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 21:47:11 / Siggi

Ekki neinn?

Ég segji það að skrifa....ég er búinn að fatta myspace........ það tók sinn tíma..... en ég fattaði þetta.....allaveganna fyrir mína parta..... myspace....er mesta sápuópera sem ég hef nokkurntímann vitað um....... bara ef maður fylgist þokkalega vel með “Status:” (single eða í sambabndi) á fólki.... það er ótrúlegt hvað þetta breitist ört.......eins og í sápuóperu......nema maður veit náttúrulega ekki hvað kom til..... þannig maður verður að fylla sjálfur í eyðunar :P ......... þetta er eins og fá slúður um fólk....frá fólkinu sjálfu.... án þess að það hefur hugmynd um það....sem er snilld!.... þetta gefur manni “ég veit að þið vitið ekki að ég veit” fíling....og mér finnst þetta vera meiri helvítis snilldin!

N1.... nýja bensínafgreiðslustöðvanafnið......er spes... það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá þetta var n-einn...neinn?....WTF????..... á þetta að þýða eitthvað....eða hvað?....eða er þetta einhver voðalega sniðugur orðaleikur..... ef einhver markaðshópur fékk borgað fyrir að hanna þetta nafn..... þá.....veit ég ekki hvað...verð orðlaus.

Þetta var nú bara stutt föstudagskvöldsblogg


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 23:01:08 / Siggi

plagiarism

Úff...páskanir búnir....sem betur fer....ekki mín uppáhald frítími.....ég verð alltaf svo óhugnarlega úldinn um páskanna......ligg hérna upp í rúmi með tölvuna að blogga...órakaðri en allt....og bara almennt hand ónýtur af engri sjáanlegri ástæðu......sem sagt.....hund úldinn...og gott betur.

Fór á eitt páskadjamm.......sem var bara mjög skemmtilegt þar sem það stóð alls ekkert til að fara á djammið....en pool og nokkrir bjórar gera stundum kraftaverk.....og þetta endaði í hööööörku djammi....og ég var þunnur í tvo daga á eftir...... kannski var þetta orsök þess að maður var úldinn um páskanna.... maður hefur verið úldinn síðan þetta djamm fór fram.

Ég er alltaf búinn að gleyma að rita um frekar skondið atvik sem ég lenti í um daginn. Ég var staddur á Rex (af öllum stöðum). Við sem höfðum lagt leið okkar þangað vorum að líta í kring um okkur enda vorum við ný komin....ég tek fljótlega eftir að gaur á barnum, sem var mjög útlendingalegur (klæddur í úlpu og með svakalegt yfirvaraskegg...ég meina.....er einhver íslendingur með þykkt yfirvaraskegg?) er eitthvað mikið að horfa á mig....ég fékk allaveganna “er ég með eitthvað framan í mér” viðbrögðin en síðan toppar gaurinn þetta með að gefa mér vafasamasta merki sem ég hef nokkurn tímann fengið..... ég get nú ekki lýst þessu í orðum (ég þyrfti að sýna það)....en það var greinilegt að hann var að bjóða mér eitthvað á milli.....já....ég bara veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu.....en þetta var mjöööööög kynferðisleg ábending.......ekki ég hafi móðgast eða eitthvað....ég tek þessu bara sem miklu hrósi ;)...... eeeeeeeeeeeen þetta fékk mig til að pæla...þar sem þetta er ekki í fyrsta skiptið sem eitthvað álíka gerist..... hvað er það í fjandanum sem karlmenn sjá svona rosalega mikið mig.....mér finnst þetta bara svo magnað.....eru kannski karlmenn miklu meiri perrar en kvennmenn..... eða er það eitthvað sem ég gef frá mér sem gerir það að verkum að samkynhneigðir karlmenn reyni við mig....ég veit ekki....en ég veit að mér finnst þetta nokkuð magnað..... það er þó ágætt að EINHVER reyni við mann ;)

Hvað á maður að kjósa í vor?......ég hef bara ekki hugmynd....ég er mikið búinn að pæla í þessu og ég er farinn að sjá fram á það að ég verði að nota útilokunarregluna.......þar sem mér sýnist þetta vera allt jafn miklir fávitar....... en útilokunaraðferðin er ekki að ganga alveg nógu vel.....hingað til hefur mér tekist að útiloka öryrkjaframboðið (fyrr dett ég dauður en að kjósa þá), Frjálslynda flokkinn og Samfylkinguna (kemur svo alls ekki til greina)......þá er samt slatti eftir..... þið getið reynt að sannfæra mig ef þið eruð eitthvað heit fyrir einum flokki eða öðrum....en ætli það endi ekki með því að maður skili auðu eða eitthvað.

Jæja.. þetta blogg var fyrir þá sem hafa verið að krefjast þess að ég skrifaði eitthvað (það hefur reyndar enginn verið að krefjast eins né neins af mér.... langaði bara að segja þetta)

Jájájájájájá....... geggjað stuuuuuð......humm...

bleeeess


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 22:07:06 / Siggi

Life is just a fantasy.......

Það er alveg hrikalegt þegar leikjanet.is er að klikka í drepleiðinlegum fyrirlestri..... þá fellur tár.

Það er komið páskafrí!.....en eins og venjulega þarf maður að gera hitt og þetta í “fríinu” en hvað....er fólk að fara gera eitthvað skemmtilegt um páskanna.....ég hef voðalega lítið planað..... þannig ef aðrir hafa eitthvað voðalega lítið planað þá getum við hist og gert stór plön........eða eitthvað........ég nenni ekki að leiðast lífið :P

Ég var að lesa á mbl.is um daginn um framboð öryrkja og aldraðra fyrir alþingiskostningarnar í vor.......eitt aðal mál þeirra er að færa lámarksbætur upp í 210 þús krónur......ég sé bara eitt athugarvert við það...... það er 11 þúsund krónum meira en ég fæ fyrir þriggja ára háskólanám!!!!........ef þetta lið kemur einum manni inn á alþingi hoppa ég fyrir bíl....og ef þau komast í ríkistjórn...hoppa ég fram af brú!....þegar ég byrja að vinna...get ég bara fótbrotið mig illa og þá...viti menn.....vúhú!...launahækkun!.......YES!

Ahhhh....já....svona er þetta bara.......vá....mig langar til að skrifa meira.....en shit ég næ bara engu út úr mér!


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 22:01:36 / Siggi

Búið

Þá er fyrsta vettvangsnámið búið og ég verð að segja að það var miklu betra og meira en ég nokkurn tímann þorði að vona.....æfingakennarinn minn var æðisleg....krakkanir voru æðislegir (þó maður hafi heldur betur fengið þjálfun í agastjórnun) skólinn var snilld.....ég lærði helling og gott betur en það....meðal annars....

....að kennarar eru bölvaðir......þeim er ekki ætlað að höndla tæknina.....ég hef alltaf verið laginn með tækni....en um leið og maður tók að sér kennslu þá fór allt til fjandans....við erum að tala um í fyrsta tíma sem ég kenni...... fyrsta mínúta....rétt snerti lyklaborðið.....og allt fer í fokk.....tölvan hrunin eða eitthvað....gaman að þessu

Svo mætir maður bara í skólann á mánudaginn...uss....verður skrítið að sitja í fyrirlestrarsal eftir þetta.

Hafið góða helgi

Kv.
Siggi



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 22:26:42 / Siggi

Ég lifi

Fyrsti kennsludagurinn var í dag....og það gekk bara framar vonum...vægast sagt...... einn dagur búinn...níu eftir....... já...það verður gott þegar þetta verður búið því ég var algjörlega búinn á því eftir daginn í dag........það er bara vonandi að næstu dagar verða eins góðir og í dag......

jæja...ætlaði bara að láta vita af mér...... 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 21:24:21 / Siggi

Nje

Mikið búið að vera gerast síðan ég ritaði síðast. Snarbilað í skólanum eins og venjulega en á föstudaginn var.....
......árshátíð kennó sem var í einu orði sagt geggjað stuð....sem eru reyndar tvö orð en það skiptir engu máli....góður matur....snildar ball....algjört stuð.
Síðan hefur helgin aðalega snúist um að jafna sig af öllu saman.

Foreldranir fóru til útlanda á fimmtudaginn þannig maður hefur verið einn hérna síðustu dagana og verð það áfram næstu eina og hálfa vikuna eða svo.....sem þýðir að ég þarf að redda mér fæði sjálfur...... gerði tilraun í gær til að elda.....sem tókst bara ótrúlega, ótrúlega vel.......ég gat allaveganna étið það, þannig ég er sáttur.
......en mér er spurn....er stemmari fyrir einhverju skemmtilegu næstu helgi hjá ykkur mínir kæru lesendur.....hmmmm.....bara að skanna stemninguna hjá ykkur.......
Núna er ein vika af skóla eftir....svo fer maður bara að kenna í tvær vikur.....shit, shit, shit, shit, shit, shit...........shit.......því er ekki hægt að neita að það er komið örlítið stress hjá mér.

En jæja....ætla að hætta

Kv.
Siggi


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 23:40:22 / Siggi

Jahá

Þar sem ég er að leita af efni til að nota við kennsluna mína sem verður síðar í mánuðinum rakst ég á bók sem er handbók fyrir leik- og grunnskólakennara um jóga, slökun og svoleiðis.... þessi bók er skrifuð að tveimur konum sem eru án efa mjög svo frambærilegar konur..... en það hefði kannski mátt lesa yfir sumt í bókinni örlítið betur.....ég veit það ekki....kannski er ég (og fleiri) bara svona rosalega pervertískur að sjá svona mikla tvíræðni í þessu. Fyrsta verkefnið sem ég ætla að sýna hefði kannski ekki verið slæmt ef það hefði staðið að þetta væri kannski bara ráðlegt í leikskólum...en nei nei... það er sérstaklega mælt með þessu með samstarfsfólki og svoleiðis....en jæja...ætla að koma með brot úr textanum:

“Eitt barn liggur á bakinu á dýnu, lokar augunum og lætur fara vel um sig. Kennarinn og hin börnin krjúpa í kringum barnið og strjúka því mjúklega. Kennarinn segir: “Nú skulum við strjúka hana Siggu létt og mjúkt, henni finnst gott þegar allir vinir hennar strjúka hana. Nú skulum við renna höndunum ósköp gætilega undir hana (lófar snúa upp) og lyfta henni solítið upp””

Ég bara veit ekki hvað ég á að segja.... mér finnst orðalagið....óþægilegt....sérstaklega þegar maður les þetta upphátt með ákveðri röddu...... getið þið ímyndað ykkur að fara með unglinga í þennan leik....jesús.

Næsta dæmi er í sambandi við nudd.....nenni ekki að fara í alla þættina en síðasti punturinn finnst mér vera frekar magnaður......á þessu stigi er þetta búið að snúast um það að nudda og strjúka handleggjum og axlir og svoleiðis.....svo kemur síðasti punkturinn:

“ Sá sem nuddar endar á því að halla sér að eyranum á viðkomandi og hvíslar einhverju fallegu til dæmis: “eigum við að vera vinir””

Þegar nuddið og síðan þetta er sett saman..... þá erum við komin með handrit af lélegri klámmynd......en hvað veit ég.... kannski er ég bara svona rosalega mikill sori......þið eruð líklega þau einu sem getið svarað því.


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 22:57:18 / Siggi

Where angels sing and spread their wings


Djöfull langt síðan maður bloggaði en það stafar af því hversu hrillilega mikið er búið að vera gerast í lífi manns.....verkefna skil, verkefna skili og meiri verkefna skil........seinni tveggja daga áheyrnin mín...sem þýðir að það eru tvær vikur þangað til ég fer að kenna......strax eftir áheyrnina á fimmtudaginn hófst vinna við kennsluverkefni (það er 160 % verkefni.....stuð)......vinna við það fram á kvöld þangað til maður mætti á keilumót kennó þar sem mitt lið stóð sig með eindæmum vel......þriðja sæti...af 25 liðum......hörku stuð.

Ég fór í gegnum þetta mjög lauslega.... en ég er bara alveg búinn á því....ennþá.... við skulum segja að það er ekki vaninn hjá mér að berjast við að halda mér vakandi klukkan 15:00.... þrátt fyrir að hafa sofið til hádegis...ég er þreyttur...en svona verður þetta út þennan mánuð.... þannig maður þarf bara að venjast því ;).....sem betur fer er árshátið kennó á föstudaginn..... verður gott að geta tekið hugan af allri geðveikinni.

Ég er búinn að vera pæla......hvað það er sem er mesta samfélagsvandamál framtíðarinnar..... ég er ekki vafa um það að það sé sem sumir kalla “internet fíkn”.....ég vil ekki meina að þetta sé endilega internet fíkn því það er stigsmunur á henni..... fyrir mér er alvarlegasti þátturinn mesta vandamáli.... það er veruleikaflóttinn.... fólk sem lifir algjörlega í ýmsum tölvuleikjum eins og til dæmis WoW...Secound life og svo framvegis..... sumt fólk er með allt sitt félagslíf í þessu....jafnvel allt líf....æ fleiri börn festast í þessum heimi, því jú, þetta er svo miklu, miklu auðveldara líf. Ef eitthvað fer úrskeiðis þá bara byrjar maður upp á nýtt....ekkert mál. Einhver sagði eitt sinn að lifa væri eins og að teikna án strokleðurs..... í þessum “gervi-veröldum” þá er allt í einu storkleðrið mætt.....höfðar örugglega til marga þar sem veröldin er oft mjög ógnvænlegur staður....sérstaklega fyrir unglinga..... þegar maður hugsar til baka þá hefði maður örugglega farið út í eitthvað svona ef það hefði verið valkostur í gamla daga þegar maður var unglingur.........jább....kreisí veröld.........

........arg!...ég nenni þessu ekki lengur


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 22:52:36 / Siggi

Þurfið ekki að lesa þetta!

Það er búið að henda mér úr húsi :P.......eins og venjulega ef koma gestir sem þurfa að gista í Naustabryggjunni þá er mér einfaldlega hennt út.....lausn við öllu sem angrar heiminn.... hendum bara stráknum út. Næstu daga er ég því hér í 101 Reykjavík hjá Hrólfi bró....... sem sagt önnur helgin í röð þar sem ég sef á dýnu, á gólfinu...... því miður er lítið um hvíld þessa daganna......

.......því á morgun er maður víst að hrinja í það með að fara á þorrablót....ef einhver ætlar að detta í það á morgun ( og fara niður í bæ ....eða bara fara edrú niður í bæ) er skilda að hafa samband..... ég beila líklega þegar fjörið verið of mikið fyrir minn smekk.

Ég fer í áheyrn í Snælandsskóla í næstu viku. Þetta verður annað skiptið sem maður fer þangað sem þýðir að sá tími sem ég á að kenna nálgast óðfluga. Já shit tíminn líður...... fyrir ári var maður að staulast gegnum menntaskóla......febrúar á síðasta ári....úff....munið eftir þeim tíma......var maður edrú einhverja daga í þeim mánuði?....já já..... en það var bara allt of fáir þannig.....jájá......good times....good times....and hard times.

Hafið þið heyrt?....helvítis geðsjúku feministanir sigruðu....ísland er orðið fasista ríki....og hvað gerðist....þeim var gefið þeim aðeins til geðs (með að úthýsa fólki sem hefur ekki gert eitt né neitt ólöglegt sem við vitum um) og núna munu þær riðjast yfir þjóðfélagið....kannski maður ætti bara að fara taka upp kreisí málstað.....plástrar...afhverju eru þeir allir bleikir....er það ekki bara helvítis rasismi... afhverju er ekki til plástrar fyrir alla mögulega kynþætti. Djös...ég beint í fjölmiðla... þetta er skandall!

Nei nei.... ég er bara pirraður....og bitur... eins og virðist vera um flesta frama “menn” hjá feministum....ég er auðvita ekki á móti öllum “feninistum”.... það er bara munur á að hafa málstað....og vera geðveikur og nota einhvern málstað til að fá útrás fyrir geðveikinni.

Vá...ég er farinn að halda að ég eigi ekki að birta þetta blogg....en fjandinn hafi það....

....ég stóðst ekki freistinguna að gera mig enn einu sinni að fífli.....
.....stundum er það yndislega fullnægjandi tilfinning......
.....stundum

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 23:25:18 / Siggi

BDSM, klám og perrar.

Svaf í fjórtán tíma í “nótt”....jamm.... enda svaf maður lítið sem ekkert um helgina.... þið vitið flest út af hverju.

Ég tók mig til í dag (ásamt fleirum) og sótti um skiptinám í Danmörku, nánartiltekið í Kaupmanna höfn, fyrir næstu önn. Það er vonandi að maður fái það....sérstaklega fyrir ykkur hin.... ágætt að losna við mig í fjóra eða fimm mánuði.....hugsa sér friðinn! :P

Hvað er málið með umræðuna um þessa smá klámráðstefnu. Nú vilja feministar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og fleiri breyta Íslandi í fasista land því fólk má víst ekki koma saman og ræða málin..... þau kröfðust þess að brjóta gegn stjórnarskránni. Svo sagði einhver feministi í útvarpinu um daginn (hún titlaði sjálfa sig sem feminista) að sumir þeirra sem væri að koma til landsins út af þessari ráðstefnu framleiddu barnaklám..... hvernig í andskotanum veit hún það!!!!!....veit einhver hver er að koma?... og ef svo er tékkaði hún á imdb.com og skoðað hún ferilskrá þessara manna... Þetta finnst mér vera málflutningur sem kemur út úr rassgatinu á ákveðnum aðilum..... hvað heldur fólk að eiginlega gerist.... að um leið og ráðstefnan hefst mun sjálfsfróun fara upp úr öllu valdi og sala á upptökutækjum stór aukist því annar hver íslendingur ætli að taka myndir af sér í hinum og þessum stellingum og setja svo á netið....come on!........ þetta er enn eitt dæmið um að fjölmiðlar blása upp mál úr öllu veldi.......hefði einhver hugmynd um þetta ef við heyrðum ekki um þetta á hverjum fokking degi........ þið fyrirgefið....en mér er bara alveg nákvæmlega drullu sama hvort þessi ráðstefna verði haldin...það er ekki hún sem mun skemma börnin okkar... ef eitthvað er... þá eru það fjölmiðlar.

Talandi um fjölmiðla.... æsifréttamennskan er kominn út í öfga og hefur verið það í mörg ár. Fyrir nokkrum árum kom Stöð tvö með frétt þess efnis að fjárframlög til Byrgisins væru ekki nægjanleg......Byrgið fær ekki nóg...allt í fokki!!!!!!..... þetta var margra daga herferð þeirra á þeirri misgóðustöð......hvað gerist síðan.....á þessu ári....Byrgið fékk allt of mikið af styrkjum...allt í fokki!!!!!.......já.... svo virðist...að allt sé bara algjörlega í fokki.

Kv
Siggi


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 21:17:55 / Siggi

..- ..- ..- ..-

Bústaður á morgun....má ég heyra í ykkur.....erru’ið ekki í stuði????

Í dag komst ég að því að það getur verið stórhættulegt að stunda líkamsrækt.....eða kannski er ég bara svo klaufskur fjandi. Það er alveg slatta óþægilegt að fá á sig 30 kílóa handlóð í síðunna....beint í bein. Þetta er nú ekkert alvarlegt...maður er bara vel aumur þar sem höggið var.....maður tekur bara mikið af verkalyfinu sínu á morgun....sem sagt alcohol :P

Vinna er hafin á fullu við stóra kennsluverkefnið.....og mér lýst bara óóótrúlega vel á þetta. Ég þori að fullyrða það 100% að þemaverkefnið okkar verði hittari og ekkert annað..... mars nálgast óðfluga og ég hlakka til.

Kv
Siggi


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 19:32:42 / Siggi

Hugleiðingar andhófsmanna

Svona er þetta stundum. Þessi önn byrjaði ótrúlega rólega. Voða lítið að gera....en núna er allt snarbilað....verkefni, eftir verkefni...maður klárar eitt en svo fréttir af tveimur öðrum sem hafa verið sett fyrir.....svona er nú mikið að gera í Kennó.....

Bústaður um helgina....geggjó stuð

Ef ég þyrfti að nefna einhver einn “hæfileika” sem ég er með þá mundi ég nefna hin ótrúlega hæfileika minn í því að næla mér í meiðsli á ótrúlegustu stöðum (og jafnvel á ótrúlegann hátt). Núna áðan tókst mér að næla mér í meiðsli á lófa....já bjánalegur staður....og plís...hlífið mér við öllum bröndurum um lófameiðsli og sjálfsfróun.

Að sjá þetta --- http://www.apple.com/trailers/wb/teenagemutantninjaturtles/trailer2/ vekur upp strákinn í mér....... ég vona að aðrir karlmenn skilji hvað ég á við....good times...good times

Kv.
Siggi


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12